Land og skógur er sameinuð stofnun Landgræðslunnar og Skógræktarinnar frá og með 1. janúar 2024. Hér verður nýr vefur stofnunarinnar byggður upp en á meðan er vísað á efni um landgræðslu og skógrækt á vefjum eldri stofnananna tveggja.
Landgræðsla
Skógrækt
Fréttir
Stuðningur við skógrækt félaga og samtaka
Land og skógur auglýsir eftir umsóknum frá félögum og samtökum um stuðning til skógræktar undir merkjum Vorviðar. Stuðningurinn er ætlaður til skógræktar á vegum almennra félaga og samtaka en ekki fyrirtækja eða stofnana. Einungis er veittur stuðningur í formi trjáplantna. Umsóknarfrestur er til 30. apríl.
Land og skógur auglýsir eftir sérfræðingi í landupplýsingakerfum
Við erum að leita að sérfræðingi í landupplýsingateymi Lands og skógar sem tekst á við fjölbreyttar áskoranir í gagnaöflun, vinnslu, greiningu, vistun og miðlun gagna. Starfið tilheyrir stoðsviði gagna, miðlunar og nýsköpunar.